Það var einhver misskilningur hjá mörgum með að æfingar á sunnudögum væru kl 13-14. Þær eru og verða frá kl 11:00-12:10 sirka á Ásvöllum á sunnudögum.
Næsta vika verður svona:
mánud. Frí
þriðjud. Æfing 15-16 inni í Kaplakrika.
miðvikud. Æfing 15-16 í Risanum
fimmtud. Frí (Markmannsæfing frá kl 16:00-17:00 í Risanum)
föstud. Æfing 15-16 í Risanum
laugard. Frí (tækniæfing kl 09:00-10:00 í Risanum fyrir þær sem vilja taka aukaæfingu)
sunnud. Æfing 11-12 Ásvellir
Eins og þið sjáið þá eru markmannsæfingar hafnar og verða þær aðra hverja viku fyrir 5.-8. flokk frá kl 16:00 til 17:00 í Risanum. Við hvetjum markmenn til að mæta á þessar æfingar og allar sem vilja prófa að vera í markinu.
Greiðsla æfingargjalda
Barna- og unglingaráð hvetur alla til að ganga frá greiðslu æfingargjalda sem allra fyrst.
Einungis er hægt að greiða allt árið með greiðslukorti eða greiðsluseðlum til 20. október - það er mun hagstæðara og því eru allir hvattir til að velja þá leið.
Hægt að dreifa greiðslum í allt að 10 mánuði. Endurgreiðsla frá bænum kemur þá öll inn og því óþarfi að skrá sig í Íbúagátt þrisvar á ári eins og hingað til. Þeir sem velja greiðsluseðil verða að hafa í huga að seðillinn birtist ekki inn í heimabankanum fyrr en eftir nokkra daga.
Skráning og greiðsla fer fram á Mínar síður á vef Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is
kveðja,
Kári Freyr
Komumst ekki á æfingu í dag (föstudag)
ReplyDeleteSóley kemur ekki á æfingu sunnudag og þriðjudag (vetrarfrí). Kv. Ingibjörg
ReplyDelete