Saturday, February 18, 2012

Plan

Sælar stúlkur,

Við minnum á æfinguna á morgun. Mæta bara vel klæddar kl 12:30. Verðum til sirka 14:00 og það verður mikið spilað eins og alltaf á sunnudögum.

Næsta vika verður svona:
Mánud. Æfing í Bjarkarsalnum frá 15-16 og 16-17.
Miðvikud. Frí útaf búningadeginum mikla. Ball um kvöldið ef þið hafið áhuga. Ýtið á myndina til að sjá hana stærri.











Föstudag. Æfing í Risanum frá 15-16.

Helgin: Gæti dottið inn æfingaleikir.

Núna getið þið hætt að lesa stelpur en þið þurfið að láta foreldra ykkar lesa þetta fyrir neðan.

Athugið stelpur sem hafa byrjað eftir áramót þurfa að skrá sig sem fyrst inn á nóra og hafa samband við Barna og unglingaráð á skraning@fh.is. Þeir segja ykkur þá hversu mikið þarf að greiða.


Við minnum á að þeir sem eru ekki skráðir í Nóra og hafa ekki greitt æfingagjöld eru ekki skráðir í FH. Þeir sem eru ekki skráðir í FH mega samkvæmt KSÍ ekki taka þátt í mótum.

kv,

Þjálfarar


Hafnarfjörður, 28. janúar 2012
Sæl foreldrar og forráðamenn knattspyrnuiðkenda yngri flokka FH
Nú fer senn að líða að næstu skráningu í Nóra kerfið fyrir sumartímabilið (apríl – september) og samhliða því fer að koma að endurgreiðslu hjá þeim sem skráðu börn sín í Íbúagáttina í október.
Stjórn Barna- og unglingaráðs (BUR) hefur ákveðið að endurgreiðslurnar úr Íbúagáttinni komi til frádráttar æfingagjöldunum fyrir næsta tímabil. Gjöldin fyrir næsta tímabil yrðu því skv. töflu 1
TAFLA 1
Fæðingarár Iðkenda
Flokkur
Iðkendagjöld
skráning Íbúagáttar til frádráttar
Til greiðslu í Nóra
1996
3
32.500
10.200
22.300
1997
3
32.500
10.200
22.300
1998
4
32.500
10.200
22.300
1999
4
32.500
6.800
25.700
2000
5
28.500
6.800
21.700
2001
5
28.500
6.800
21.700
2002
6
28.500
6.800
21.700
2003
6
28.500
6.800
21.700
2004
7
22.500
6.800
15.700
2005
7
22.500
6.800
15.700
2006
8
16.000
0
16.000
2007
8
16.000
0
16.000

Þar sem við getum tekið skránna frá Íbúagáttinni og keyrt inn í Nóra kerfið sparar þetta okkur töluverða vinnu og umsýslu við að elta uppi korta- eða reikningsnúmer fyrir endurgreiðslu og tengja við kennitölu iðkenda.
Ef einhverjir foreldrar/forráðamenn una þessu ekki og vilja frekar fá endurgreiðsluna greidda til sín og greiða full iðkendagjöld næst,  mun liggja frammi eyðublað á ætluðum skráningardegi í Krikanum í mars, þar sem viðkomandi getur fyllt út þær upplýsingar sem þörf er á vegna endurgreiðslunnar.

Með bestu kveðju

Helgi Halldórsson, formaður BUR
Thelma Jónsdóttir, gjaldkeri BUR  
Þórður Bjarnadson, ritari BUR


8 comments:

  1. við mætum á æfingu í dag sunnudag:):) kv Helena og Karó

    ReplyDelete
  2. ég kemst ekki á æfingu á morgun :(:(:(:( kv helena og andrea erum að fara á þemadaga í tónó:(:(

    ReplyDelete
  3. kemst ekk iá æfingu þassa vikuna er neflilega að fara að keppa í frjálsum og vill ekki meiðast fyrir mótið :( :(

    ReplyDelete
  4. kemst ekki á æfingu í dag :( er svo meidd í hnénu :(

    ReplyDelete
  5. kem á æfingu í dag

    ReplyDelete
  6. kemst ekki á æfingu í dag :(

    ReplyDelete
  7. kem ekki á æfingu i dag er veik

    ReplyDelete
  8. kem ekki á æfingu i dag er veik

    ReplyDelete