Thursday, April 12, 2012

Leikir og dósasöfnun um helgina

Sælar stúlkur,

Minnum á æfingununa á morgun (föstudag frá 15-16 í Risanum). Allar að mæta.

Á laugardaginn er dósasöfnun hjá öllum. Dósum og flöskum skal skila á Fjóluhlíð 13. Verið duglegar stelpur því þetta fer svo í sameiginlega sjóð til að kaupa peysur eða eitthvað sniðugt :)

Á sunnudaginn eiga A,B,C og D1 leik gegn Haukum. D2 hvílir þessa helgi en spilar um næstu helgi.

A og C eiga að spila kl 09:00 og er mæting hjá báðum liðum 08:20 upp á gervigrasið í Kaplakrika.
B og D eiga að spila kl 09:50 og er mæting 09:10 hjá báðum liðum. Leikið verður á gervigrasinu í Krikanum.

Mætið með legghlífar, teygju í hárinu og keppnisskapið í vasanum.

A-lið

Aþena (C)-Karólína-Helena-Kristín Fjóla-Bjarkey-Þórdís-Saga-Aníta (M)-Guðný

B-lið
Embla Jóns (C)-Helga Magnea-Sara L‘orange(M)-Bryndís-Sigrún-Andrea-Diljá Ýr-Gunnhildur-Fanney

C-lið
Diljá Sig-Kristín Jörg-Þórey-Sigga-Koldís-María-Telma-Rósa-Yrsa(M og C)

D-lið
Erla-Petra-Úlfa-Diljá Birna-Eygerður-Guðrún-Salka-Sóley (C)-Jenný

Vinsamlegast látið vita ef þið komist ekki. Það þarf að gerast helst strax svo við getum þá kallað einhverja úr D2 ef það vantar.

Ef það er eitthvað þá getið þið sent e-mail á doddason@gmail.com eða hringt í síma 691-6282

Minnum svo allar nýjar stelpur að skrá sig á Nóra!!!
www.fh.is/nori

Markmenn athugið. Markmannsæfingar hefjast að nýju. 20 apríl er næsta æfing hjá ykkur og svo aðra hverja viku. Þannig það er 20 apríl og svo næst 4.maí. Þær fara fram í Risanum á fimmtudögum frá 17-18. Allir markmenn að mæta!

kv,
Þjálfarar




4 comments:

  1. ég er búinn að vera lasinn þannig að ég kemst ekki á æfingu í dag en kem á morgunn og hinn

    ReplyDelete
  2. ég mæti klárlega !!!!!!!

    ReplyDelete
  3. Andrea SteinþórsdóttirApril 13, 2012 at 2:48 PM

    ég mæti í flöskusöfnunina :D

    ReplyDelete
  4. ég mæti í flöskusöfnunina og leikinn

    ReplyDelete